3.10.2006 | 15:26
Slúðrið
Þriggja barna móðir! Leikkonan Jennie Garth,
sem lék Kelly í Beverly Hills 90210,
eignaðist stelpu á laugardaginn.
Jennie er gift Peter Facinelli sem lék í þáttunum
Fastline, sem voru eitt sinn sýndir á Skjá1.
Er þetta 3ja stelpan þeirra og
hefur hún verið nefnd Fiona Eve...
***
Orlando Bloom með hundinn sinn Sid (t.v.)
í Hollywood Dog Park sl. laugardag...
***
Tori Spelling með eiginmanni sínum,
Dean McDermott á labbinu í Toronto í gær...
***
Vinkonur! Winona Ryder og Kate Moss að versla saman í NY.
Þær eru sem sagt vinkonur, sem væri ekki í frásögur færandi
nema vegna þess að þær voru BÁÐAR eitt sitt trúlofaðar
Johnny Depp! Sem btw. er ógeðslega hot!
***
Talandi um Kate Moss,
þá er hún sögð vera að plana írskt brúðkaup
með kærasta sínum, vandræðagemsanum Pete Doherty.
Það sem meira er - þau ætla fljótlega
að fara stofna fjölskyldu! Ji minn eini!
***
Eva Longoria er sögð hafa hætt með Tony Parker
vegna þess að það sást til hans daðra við fyrrverandi
kærustu sína. Tony mætti í frumsýningarpartý kvikmyndarinnar
The Departed og fór að daðra við fyrrum kærustu sína fyrir framan
fjöldan allan af celebum, eins og t.d. Leonardo DiCaprio,
Mick Jagger, Bono og The Edge úr U2.
Eva er sögð hafa orðið miður sín þegar
hún komst að þessu. Auðvitað!
***
Flokkur: Slúðrið!!! | Breytt s.d. kl. 15:51 | Facebook
Um bloggið
Stjörnuslúður
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
oh.... Er Or hundakall líka, hmm.....
Sést ekki annars aðeins í kúluna á Tori ?
Guðrún Lind (IP-tala skráð) 3.10.2006 kl. 16:23
Já ég var einmitt að pæla í því...finnst ég sjá smá kúlu!
Þessi Or mynd var nottla sett inn spes fyrir þig...vissi að þú mundir bráðna þegar þú sæir að hann væri hundakall ;-)
sludur, 3.10.2006 kl. 16:30
var einmitt að spá hvar allt beverly hills gengið væri.. mátt grenslast um hann Billy í Melrose place fyrir mig þegar þú mátt vera að.. hann er einn af fáum úr þeim þáttum sem hafur ekki sést aftur á skjánum.
Árún (IP-tala skráð) 4.10.2006 kl. 09:50
hmmmm... er ekki saklaust daður í lagi??? Sástu ekki þáttinn með Hamma Gunn um daginn??? Þar var Guðjón Ármann að tala um það að það væri allt í lagi að daðra og fá daður... það væri eitthvað sem gæfi lífinu lit! :)
Jakob, 4.10.2006 kl. 11:49
Það er svo misjafnt hvað fólk kallar "saklaus daður". Nett daður er að sjálfsögðu í lagi...svo framalega að það fari ekki að flokkast sem "að reyna við" viðkomandi ;-)
En ég sá ekki þáttinn. Sé aldrei sjónvarp...nema ANTM! :-)
sludur, 4.10.2006 kl. 15:10
Mikið rétt... það er mikill munur á saklausu daðri og að reyna við... sammala þar! ;)
Jakob, 4.10.2006 kl. 15:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.